Færsluflokkur: Bloggar

Hilmar kemur í dag

Jeiiiijjj...Hilli bróðir kemur í dagGrin...það eru bara tveir tímar í það að ég og Sara Björk förum upp á flugvöll og náum í hannSmile...hann flaug fyrst til London Standsted og flýgur svo þaðan áfram til Asturias...haldiði ekki bara að hann hafi ekki rekist á hann Dustin Hoffman á London Standsted flugvellinumWink...

Það er fínasta veður í dag...það eru nokkur ský á himni en sólin gjæist alltaf af og til á milli þeirra...það er aldrei að vita nema sólin bara ýti skýjunum alveg í burtu þegar líður á daginnCool...


Sofið á daginn og vakið á nóttunni!!!

Síðasti mánuður var ansi erfiður hjá okkur mæðgunum...sú litla var með mikla mallaverki í byrjun mánaðarCrying...mikið grátiðCrying...það er svo erfitt að horfa upp á barnið sitt gráta svona mikið og maður getur ekkert gertBlush...en sem betur fer er hún öll að verða betri þótt það komi nú vöku nætur inn á milli...

Það er komið nýtt albúm og færsla á síðuna hennar www.barnaland.is/barn/65677 Þrátt fyrir allan gráturinn og verkina þá dafnar henni alveg svakalega velSmile...hún er orðin 60cm og 5,3kgGrin...hún er búin að stækka upp úr öllum fötunum sem Ingunn systir mín sendi mér í mars...

Hilli bróðir er að koma í heimsókn eftir vikuGrin...jibbí...ég er orðin SVO spennt að fá hann í heimsókn...hann fær örugglega svaka gott veður þegar hann kemur og þá getum við farið og sólað okkur á ströndinniCool...hann þarf nú einu sinni að að venja húðina fyrir Texas...(hann er að fara þangað 31.maí og verður í hálfan mánuð)...svo ætla ég að draga hann með mér í búðir því ég þarf að kaupa fullt af fötum á hana Söru Björk áður en við komum heimWink

Það styttist síðan alveg óðum í það að við komum heimWink...ég get ekki beðiðGrin...mig langar helst bara að fara að pakka öllu núna og vera alveg reddí þegar við förum heheheSmile...ætli við komum ekki heim í kringum 3. eða 4.júní...við vitum það samt ekki alveg...það kemur betur í ljós þegar líður á mánuðinn...

 


Langt síðan ég bloggaði eitthvað síðast

Enda er alveg búið að vera nóg að gera...auðvitað getur maður bara ekki haft augun af litlu Söru BjörkInLove og svo voru líka bæði settin af öfunum og ömmunum hér um páskanaWink...það var ekkert smá gaman og gott að hafa þau hér til að stjana við okkur...svo klikkuðu þau nú ekki á því að koma með páskaegg handa okkur sem var náttla bara alveg snilldTounge...ég var búin að biðja um eitt lakkríspáskaegg frá góu og eitt hríspáskaegg frá freyju og svo fengum við líka svona mínímí páskaegg frá nóa og síríus nammi nammGrin...auðvitað var þetta allt étið upp til agnaBlush...það var alveg fullt gert hérna á meðan þau voru hér...það var farið upp í fjöll og aðeins mollast...en það var nú reyndar ekki mikið keypt því á meðan þau voru hér fór evran alltaf hækkandi og var held ég hæst í 126krShockingjæks...já og svo líka byrjaði veturinn hér á Spáni akkurat þegar þau komuCrying...svei mér þá, þá held ég barasta að það hafi verið 20 stiga hiti og sól Cooldeginum áður en þau komu og svo fór bara veðrið alltaf versnandi...síðustu dagana kom meira að sega haglél...þau sem öll komu bara með sundföt og stuttbuxur heheheLoL ææææjjj mar á nú ekki að vera að hlæja af þessu en þeim sem langaði svo að komast af klakanum aðeins í sólinaCool en þetta gleymdist nú allt þegar þau sáu litla sólargeislann okkar hana Söru BjörkSmile...það var alveg svakalega notalegt að hafa þau öll hér í heimsókn...mar er bara strax farinn að sakna þeirra...vonandi verða bara þessir tveir mánuðir sem eftir eru fljótir að líða...ji hvað Sara Björk verður örugglega orðin stór þegar þau sjá hana næstSmile

P1040383 P1040384P1040329


Litla prinsessan komin í heiminn

Var að setja inn fyrstu myndirnar á barnalandsíðunaGrin. Skrifa meira seinnaWink

http://www.barnaland.is/barn/65677


Hhhmmmmmm

Þá er það enn ein helgin sem ég er home alone. Logi fór á fimmtudagskvöldið á miðnætti og kemur ekki heim fyrr en á sunnudagBlush Ég barnastússast þá bara eitthvað á meðan hehehe. Við vorum einmitt að fá glæsikerruna og barnabílstólinn í fyrradagGrin jeij. Svo er ég bara að undirbúa það dót sem ég ætla að taka með mér þegar barnið ákveður að láta sjá sig hehehe. Svo var ég líka að fylla á skiptitöskuna sem fylgdi kerrunniTounge. Það er alveg svaka spenna í gangi núna því núna eru bara 19dagar í settan dagWink og 13 dagar þangað til ma og pa og tengdó komaGrin 

Eins og ég tala alltaf um þá er alltaf bara yndislegt veður hérna hjá okkur og vonandi verður það bara þannig hehehe. En ég settist út á bekk í fyrradag í svona 15 mínútur og þegar ég kom inn var ég komin með freknur, jjjjiiii. Það er nánast bara alla dag milli 15-20°c og sólCool

Jæja hvort verður það stelpa eða strákur?????????????


Nýr fjölskyldubíll

Við vorum að fá nýjan fjölskydubíl heheheGrin. Hvernig lýst ykkur áTounge?

P1040232 P1040231

Það sem er að frétta núna er það að í dag er ég gengi 35 vikur með meðgönguna og aðeins 35 dagar eftir í settan dagWink Logi og liðið lagði af stað á útileik í gærkvöldi kl 23 en það er ekki leikur fyrr en á föstudagskvöldið. Þetta er víst einhver 12 klukkutíma rútuferðShocking og þeir koma ekki heim fyrr en einhvern tíman á laugardaginnFrown. Ég hef samt alveg nóg að gera á meðanWink og svo er veðrið náttúrlega alltaf jafn æðislegt, hver veit nema mar geti bara náð sér í smá litCool það veitir nú ekkert afLoL Hey já svo er ég hætt að haltra um eins og bavíani því það hefur greinilega losnað um tauginaGrin þetta er allt annað lífSmile


Komin með barnarúm og kerru

Jeij ég gat loksins ákveðið mig í því hvernig kerru ég vildi kaupa Toungehehehe. Við pöntuðum þessa glæsikerru sem við fáum eftir ca.20 dagaWink. Þetta er svona barnabílstóll sem hægt er að setja á kerruna og einnig hægt að halla bakinu þannig að barnið getur sofið eins og í vagni. Svo er hægt að taka bílstólinn af og setja sæti þegar barnið er orðið stærra. Obboslega sneddí græjaGrin. Við fengum svo bara lánað svaka fínt rimlabarnarúm hjá klúbbnum og settum það saman í fyrradagSmile.  Það eru nú bara 39 dagar í settan dagInLove Svo eru bara 34 dagar þangað til ma & pa og tengdó koma. Spurning hvort mar verði búin að eiga áður en þau koma eða á meðan þau eru hér. Vonandi fer mar ekki langt fram yfir settan dag því þau fara öll héðan 24.marsWoundering Ég á örugglega bara eftir að tala um barnadót og eitthvað svoleiðis núna hehehe.

Ég þjáist

af svo miklum verk. Já ég er búin að vera með einhverja helv**** klemmda taug í rasskinninni núna í rúmar tvær vikurCrying ógó vont. Ég er að fara í þriðja skiptið í sjúkranudd á eftir en mér finnst það svo sem ekkert vera að gera neitt gott, bara ertir verkinnAngry En ég er allavega til í prufa allt til að losna við þennan verk.

Það er enn einn útileikurinn hjá Loga núna um helgina en núna er það bikarleikurGrin. Þannig að ef þeir vinna á föstudaginn þá keppa þeir aftur á laugardaginn. Ég ætla að fara á leikinn með Mae, kærustu Petes og svo kemur einhver vinur hans Matt með okkur líka. Þetta eru einhverjir þrír tímar í keyrsluBlush. Við ætlum svo að gista þarna ef þeir keppa líka á laugardaginn.

Í dag eru 49 dagar í settan dag. Var að setja inn nýja mynd af bumbunniTounge http://www.barnaland.is/barn/65677 InLove

Ó mæ hvað tíminn líður hratt, 1.febrúar á morgun, 44 dagar þangað til ma&pa og tengdó koma í heimsóknGrin Það verður sko gott að láta stjana við sig þegar þau koma hehehehe


Skýjað, 20 stiga hiti og heitur vindur :)

Veðrið er búið að vera alveg frábært hérna á Spáni þótt það verði nú einstaka sinnum soldið kaltWink en þá rýkur hitinn alltaf upp afturCool Það er allt annars mjög gott að frétta af okkur, aðeins 63 dagar í settan fæðingadag og barnið stækkar og stækkarGrin

Logi er náttúrulega alltaf á fullu í körfunni og þeir voru einmitt að leggja af stað í útileik í dag en spila reyndar ekki fyrr en á morgun. Það er ansi mikið hallæri hjá liðinu reyndar eins og er, eiginlega allir stóru gaurarnir meiddirFrown Liðið er reyndar búið að redda auka stórum gaur fyrir leikinn á morgun þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvernig sá leikur fer. Eftir leikinn á morgun er tímabilið akkurat hálfnað og eins og er eru þeir í 2.sæti deildarinnarTounge.

Við erum annars bara búin að vera að skoða svona hitt og þetta barnadót sem við þurfum að fara að kaupa. Ji ég vissi ekki að það gæti verið svona erfitt, ég er svo óákveðin hvað ég vil kaupaWoundering. Ég vildi að Ingunn systir mín væri hérna hjá mér núna, hún mundi sko segja mér hvað ég ætti að kaupa og við mundum örugglega ná að kaupa allt á einum degi hehehehLoL. Ég fékk nú samt sem betur fer góðan lista hjá henni áður en ég fór út yfir svona það helst sem maður þarf að eiga svona til að byrja meðWink

Meðan ég man þá var nýársheitið okkar Loga að verða góð í spænskunni áður en tímabilið er á endaSmile Ég vona að það gangi, allavega mætum við alltaf tvisvar í viku í tíma og þar gengur okkur ágætlega. Við erum allavega farin að skilja ágætlega og Logi talar líka ágætlega en ég er ekki alveg komin með þetta. Mér finnst mér vanta svo mikið upp á orðaforðann. En eins og alltaf þá er þetta svo allt öðruvísi því við umgöngumst aðallega fólk sem talar ensku og þurfum þess vegna ekki að reyna á okkur að tala spænskunaUndecided En vonandi kemur þetta bara hjá okkurSmile hehehe


Gleðilegt nýtt ár!!!!!!!!!

jæja þá er ég komin aftur til Gijon sem er alveg æðislegtGrin. Hér er dásamlegt veður, hiti og sólCool Í dag eru 70 dagar í kríliðInLove ji hvað þetta er fljótt að líðaWink.

Ég ætti nú kannski aðeins að skrifa hérna um ævintýrið sem við lentum í á leiðinni heim 23.des. Við fórum héðan á áætlun, keyrðum til Oviedo þar sem flugvöllurinn er (ca. 20mín í burtu). Flugið fór á réttum tíma til Madrid og allt gekk vel Smileþangað til við komum til MadridFrown. Við vissum að við yrðum að vera á áætlun því við áttum að fljúga frá Madrid til London. Við áttum að eiga ca. 2 tíma og korter í London til að ná í töskurnar, fara yfir í næsta terminal og checka okkur inn. En þegar við komum til Madrid þá var fluginu okkar seinkað um klukkutíma vegna mikillar þoku í LondonAngry. Við vorum orðin ansi stressuð að ná ekki vélinni til Íslands og þá þegar við vorum komin inn í vélina í Madrid sáum við tíman fljúga frá okkur. Við biðum og biðum eftir að allir voru komnir inn í vélina svo loksins fórum við í loftið. Síðan sveimuðum við endalaust í biðröð eftir að fá að lenda í London og svo loksins lentum við en nei við fengum engan rana og þess vegna þurftum við að sitja stopp í vélinni í einhvern 1-2 tímaDevil. Við fengum síðan loksins rana og hlupum þá af stað og tróðum okkur inn í röðina þar sem maður þarf að sýna vegabréfin til að komast inn í flugvöllinn, hlupum svo og náðum í töskurnar sem við þurftum by the way að bíða aðeins eftir. Hlupum svo yfir á næsta terminal og komum þá að deski icelandair en þá var búið að loka og enginn þarCryinggrenj grenj. Við misstum af fluginu. Við reyndum allt hvað við gátum til að komast með vélinni en það var ekki sjens. Við létum bóka okkur í flugið daginn eftir, fundum góðan starfsmann á vellinum sem reddaði okkur gistingu eftir að hafa hringt á allavega 8 hótel eða eitthvað svoleiðis. Við lentum sem sagt heima á klakanum kl 16 á aðfangadagSmile. Þrátt fyrir allt þetta voru þetta alveg yndisleg jól. Alveg æðislegt að geta eytt svona hátíðardögum með fjölskyldunniInLove.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband