Færsluflokkur: Bloggar
21.10.2007 | 11:10
25 ára í dag!!
Jæja þá er mín bara orðin 25 ára þótt mér finnist ég ekki deginum eldri en 18 ára hehehe. Veit ekki alveg hvernig dagurinn verður en við vöknuðum allavega í morgun og þá var glampandi sól. Ætlum eflaust að kíkja í bakaríið og kaupa ný rúmstykki og eitthvað gotterí
með í hádegismat. Svo fæ ég nýjasta ipod nanoinn í afmælisgjöf frá Loga
Ég þarf samt aðeins að bíða eftir honum því við ætlum að fá ma & pa til að kaupa hann í ameríkunni og þá fær Logi líka ipodinn sinn sem ég gaf honum í afmælisgjöf (í september) Við ætlum síðan að fara eitthvað fínt út að borða í kvöld
Núna styttist líka óðum í það að við fáum okkar fyrstu gesti og það eru tengdó sem eru að koma á fimmtudaginn
og þau ætla að vera hér fram á mánudag
Það er alltaf svo gaman að fá gesti
Svo styttist bara óðum í jólin, ég er með niðurteljara á síðunni minni og það eru bara 64 dagar þangað til. Við náum að koma heim í einhvern tíma um jólin það verður líka svaka gaman. Svo bíður maður spenntur eftir nýjasta fjölskyldumeðlimnum en hún Ingunn syss á að fara að eiga bara núna á næstu dögum. Hún er sett 5.nóvember en ma & pa grátbiðja hana að halda í sér allavega yfir 7.nóv því þá koma þau heim frá ameríkunni
Hún segist samt sjálf finna það hjá sér að hún fari eitthvað framyfir eins og með hana Herdísi Önnu. Það er gaman að þessu
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ég ætla að fara að njóta dagsins og fara út í góða veðrið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.10.2007 | 16:22
Það er nóg búið að gerast síðan ég bloggaði síðast
Ég er svona að kynna mér þetta blogg, hvað er hægt að gera hérna og svona Ég var búin að minnast á það í síðustu færslu að við værum byrjuð í spænskunámi. Við erum sko bara nokkur saman í tíma þetta er svona svipað og einkakennsla. Ég, Logi og þrír gaurar úr liðinu hans. Það er bara einn af þessum gaurum sem kann að babla aðeins á spænsku en við hin erum alveg lost
Þegar við mættum í tíma númer tvö haldiði þá ekki bara að SJÓNVARPIÐ var mætt á staðinn
Þá fannst þeim svo sniðugt að það væru svona margir leikmenn frá sitthvoru landinu sem vildu læra spænsku. Ég var alveg að reyna eins og ég gat að fela mig bak við bækurnar
og reyna að vera ekki í mynd en ég held að það hafi nú ekkert tekist svo obboslega vel því það voru ýmsir sem sáu þetta í sjónvarpinu síðasta mánudag
Við fylgjumst reyndar ekkert með spænskasjónvarpinu þannig að við sáum þetta ekki en við fáum þetta á teipi frá sjónvarpsstöðinni
Svo er því miður það að frétta að Logi meiddist í bakinu í síðasta leik fyrir viku og er ekkert búinn að geta æft eða spilað. Hann er nú samt allur að koma til og er orðinn bara ansi góður þannig að hann ætlar að athuga hvort hann geti ekki æft á mánudaginn
Hér er alltaf sama blíðan 20-25stiga hiti alla daga þótt það sé kannski ekki heiðskýrt alla daga þá er samt þvílíkur hiti
Ég kann greinilega ekki að búa í svona heitu landi ég kom nánast bara með svört síðerma föt með mér
Nú styttist óðum í það að tengdó koma í heimsókn aðeins 12 dagar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2007 | 14:22
Velkomin/n á nýju síðuna mína :)
Ég ætla að reyna að vera dugleg núna að blogga. Við erum sem sagt búin að koma okkur mjög vel fyrir hérna í Gijon á Spáni og allt gengur rosa vel. Logi er á fullu í körfunni og svo í fjarnámi að heima til að klára stúdentinn. Við erum svo líka bæði í spænskunámi hér tvisvar í viku. Þannig að það er nóg að gera. Í dag er ég 16.vikur og 1.dag á meðgöngunni minni og allt gengur rosa vel
. Ég fór einmitt í mæðraskoðun í gær og fékk að sjá litla krílið
algjört bjútí. Læknirinn spurði hvort ég vildi fá að vita kynið en við erum ákveðin í því að vera ekkert að fá að vita það
það er bara meira spennó
Kannski fínt að minnast á það líka að ég er búin að búa til barnalandssíðu fyrir litla krílið okkar
http://www.barnaland.is/barn/65677
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)