Það er nóg búið að gerast síðan ég bloggaði síðast

Ég er svona að kynna mér þetta blogg, hvað er hægt að gera hérna og svonaWink Ég var búin að minnast á það í síðustu færslu að við værum byrjuð í spænskunámi. Við erum sko bara nokkur saman í tíma þetta er svona svipað og einkakennsla. Ég, Logi og þrír gaurar úr liðinu hans. Það er bara einn af þessum gaurum sem kann að babla aðeins á spænsku en við hin erum alveg lostWhistling Þegar við mættum í tíma númer tvö haldiði þá ekki bara að SJÓNVARPIÐ var mætt á staðinnShocking Þá fannst þeim svo sniðugt að það væru svona margir leikmenn frá sitthvoru landinu sem vildu læra spænsku. Ég var alveg að reyna eins og ég gat að fela mig bak við bækurnar Pinchog reyna að vera ekki í mynd en ég held að það hafi nú ekkert tekist svo obboslega vel því það voru ýmsir sem sáu þetta í sjónvarpinu síðasta mánudagFrown Við fylgjumst reyndar ekkert með spænskasjónvarpinu þannig að við sáum þetta ekki en við fáum þetta á teipi frá sjónvarpsstöðinniWoundering Svo er því miður það að frétta að Logi meiddist í bakinu í síðasta leik fyrir viku og er ekkert búinn að geta æft eða spilað. Hann er nú samt allur að koma til og er orðinn bara ansi góður þannig að hann ætlar að athuga hvort hann geti ekki æft á mánudaginnGrin Hér er alltaf sama blíðan 20-25stiga hiti alla daga þótt það sé kannski ekki heiðskýrt alla daga þá er samt þvílíkur hitiCool  Ég kann greinilega ekki að búa í svona heitu landi ég kom nánast bara með svört síðerma föt með mérBlush Nú styttist óðum í það að tengdó koma í heimsókn aðeins 12 dagarWink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæsileg íbúðin! Sé að þið eruð með svona skolskál hehe...ekki það að ég sjái mikinn tilgang með svona skál en þetta er ábyggilega algjör snilld þegar maður er nýbúin að eiga...fínt í að kæla niður auma svæðið hehe .

Ingunn syss (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 21:58

2 identicon

ahahahaahhaha

Birness (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 23:02

3 identicon

Hæ elskan mín!

Flott nýja síðan þín :) Íbúðin lítur rosalega vel út og bumban þín :D

Hafið það gott í góða veðrinu - Lúv Magga 

Magga (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 20:38

4 identicon

Þýðir ekki að vera í svörtum síðermum í sólinni :) Rosa gaman að fá símtal frá þér um daginn,

kissogknús

Inga (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband