25 ára í dag!!

Jæja þá er mín bara orðin 25 áraGrin þótt mér finnist ég ekki deginum eldri en 18 ára hehehe. Veit ekki alveg hvernig dagurinn verður en við vöknuðum allavega í morgun og þá var glampandi sól. Ætlum eflaust að kíkja í bakaríið og kaupa ný rúmstykki og eitthvað gotterí Winkmeð í hádegismat. Svo fæ ég nýjasta ipod nanoinn í afmælisgjöf frá LogaGrin

ipodnano

Ég þarf samt aðeins að bíða eftir honum því við ætlum að fá ma & pa til að kaupa hann í ameríkunni og þá fær Logi líka ipodinn sinn sem ég gaf honum í afmælisgjöf (í september)Blush Við ætlum síðan að fara eitthvað fínt út að borða í kvöldSmile Núna styttist líka óðum í það að við fáum okkar fyrstu gesti og það eru tengdó sem eru að koma á fimmtudaginnWink og þau ætla að vera hér fram á mánudagSmile Það er alltaf svo gaman að fá gestiGrin Svo styttist bara óðum í jólin, ég er með niðurteljara á síðunni minni og það eru bara 64 dagar þangað til. Við náum að koma heim í einhvern tíma um jólin það verður líka svaka gaman. Svo bíður maður spenntur eftir nýjasta fjölskyldumeðlimnum en hún Ingunn syss á að fara að eiga bara núna á næstu dögum. Hún er sett 5.nóvember en ma & pa grátbiðja hana að halda í sér allavega yfir 7.nóv því þá koma þau heim frá ameríkunniSmile Hún segist samt sjálf finna það hjá sér að hún fari eitthvað framyfir eins og með hana Herdísi Önnu. Það er gaman að þessuGrin En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ég ætla að fara að njóta dagsins og fara út í góða veðriðCool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku elsku Birna mín.

Til hamingju með afmælið. Vonandi hefur þú það bara rosalega gott í dag og alveg næstu daga líka en sér í lagi í dag.

Ég bið að heilsa Loga og bumbubúanum.

Þín Þórunn

Þórunn (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 17:08

2 identicon

Takk eskan mín

Birness (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 17:43

3 identicon

HÆ elskan mín!

Var einmitt að senda þér ammó-kveðju á Myspace Til hamingju með afmælið og hafðu það rosalega gott dúllan mín með bumbuna

Knús á þinns - Maggie 

Magga (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 19:46

4 identicon

Til hamingju með daginn elsku besta systir mín

Ingunn syss (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 20:29

5 identicon

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU DÚLLAN MÍN!!!!

(betra seint en aldrei;)

Inga (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 21:13

6 identicon

Elsku krúttið mitt

TIl hamingju með afmælið um daginn.

Stórt knús frá okkur

Pálína (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 20:58

7 identicon

Til hamingju með afmælð um daginn  vonandi hefuru það gott í sólinni og nýtur hennar í botn

Lára (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband