Færsla á dag

Ég vild ég gæti skrifað nýja færslu á hverjum degiWink. Ég hef verið að lesa hin og þessi blogg og mér finnst vera svo margir sem skrifa færslu bara á hverjum degi eða annahvern dag. Ég nenni nú ekki að fara að drepa fólk úr leiðindum með því að skrifa hvað ég var að gera yfir daginnShocking þótt það sé nú alveg nóg að gera hjá mér yfir daginnTounge 

Það er allavega nóg að gera núna þessa dagana við erum með gestiSmile og þá flýgur tíminn bara frá manni. Bara á þessum stutta tíma erum við búin að sýna þeim það helst svona sem er að sjá hér í Gijon og svo auðvitað búin að fara í mollinJoyful. Það er spurning hvort þau fari ekki með einhverja yfirvigt heimWhistling  Svo vorum við skötuhjúin að kaupa okkur PLASMA-TV, geggjað flottGrin 

Það er leikur hjá Loga á morgun og það er útileikur. Þetta er þá fyrsti leikurinn hans frá því hann meiddist í bakinu. Leikurinn er einhverja 4 tíma í burtuShocking og liðið lagði af stað í dag en við erum að spá í fara á leikinn á morgun. Við leggjum þá örugglega bara af stað um hádegi og tökum því rólega. !!!!GO GIJON!!!!W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég mundi alveg lesa á hverjum degi hjá þér bloggið...alltaf gaman að fylgjast með hvað fólk er að bralla..;) Þegar maður er að læra þá þarf maður að hafa sem flest blogg tilað kíkja inn á svona daglega ;)

Til hamingju með nýja sjónvarpið :) og Góða skemmtun á leiknum á morgun og GO GIJON...!!

P.s. þar sem fyrsti snjórinn varað falla hérna á klakanum máttu endilega senda smá sólarstrauma

Kolla (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 22:53

2 identicon

Til hamingju með TV-ið. Þú gleymdir alltaf að hringja og fá upplýsingar hjá Didda sambandi við sjónvarp...vonandi hafið þið keypt eitthvað  almennilegt hehe.

Kossar og knús.

Ingunn syss (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband