26.11.2007 | 11:42
Ég er algjör...
meistarakokkur, þótt ég segi sjálf frá híhíhí. Thanksgiving maturinn var alveg svakalega góður
. Ég get nú kannski ekki tekið kredit fyrir allt en ég bjó til fyllinguna í kalkúninn, salatið og kokkaði kalkúninn
Matt kom með kartöflumús, Brandon kom með ostaköku í eftirrétt, Logi bjó til sósuna, Mae bjó til meðlæti og hinir komu með drykki. Þetta voru ca. 6.5kíló af kalkún þannig að það er búið að vera afgangur af kalkún í öll mál núna síðustu daga
Kalkúnninn lítur kannski ekki eins vel út á mynd og ég hélt en ég setti bara samt inn mynd af honum.
Kalkúnninn
Veislu borðið
Logi, Matt, Andy, Lucian, Brandon, Pete og Mae
Það er allt annars gott að frétta og við alltaf að verða spenntari og spenntari að koma heim um jólin. Aðeins 27 dagar þangað til við komum heim
Litla prinsessan hennar Ingunnar systur verður síðan skírð um helgina. Það er spennandi að vita hvaða nafn hún fær
.
Athugasemdir
Mmmm mér finnst þetta bara mjög girnilegt hjá þér, vona að manni verði einhvern tíman boðið í thanksgiving dinner hjá þér og það lítur út fyrir að þetta hafi verið rosa næs hjá ykkur..
Við erum að vinna í óskalista, Hilli er komin með helling ég á í smá vandræðum með minn lista
Hlakka tilað sjá ykkur og bumbuna eftir 25 daga
Kolla (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 19:00
Ummm mér finnst þetta nú bara líta ansi vel út !!!
Birna held að þú verður einhvern tímann að kokka ofan í okkur Búagellur :)
Vonandi sjáumst við eitthvað þegar þú kemur on the klake !!
Pálína (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 19:50
Kolla: þér er sko alltaf velkomið að kíkka á okkur til Spánar í thanksgiving dinner
...ég skal meira að segja vera með eitthvað gott á boðstólnum þótt það sé ekki thanksgiving hehehe...já endilega párið eitthvað niður á blað svo við höfum einhverja hugmynd um það hvað við getum gefið ykkur í jólagjöf
...annars verðiði bara að sætta ykkur við kerti og spil heheheh
...hlakka sömuleiðis til að sjá ykkur
Pálína: ekkert mál...ég skal sko kokka ofan í ykkur einhvern tímann heheheh
...verður þú eitthvað í bænum um jólin eða strax eftir jól? Verður einhver búahittingur þá?
Birness (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 22:53
Ummm. loookar veeeel.....væri alveg tilí svona Kalkúnadag hérna á Íslandi;) Við skulum endilega að reyna að hitta á búagellurnar milli jóla og nýárs eða bara á nýja árinu áður en þú ferð!! Það væri svo æði að hittast allar og sjá kúluna þína ástin!!
xxx
Inga (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 09:03
Já verðum að hittast allar þegar þú kemur !! Svona allavega einu sinni áður en litla krílið lætur sjá sig :O)
Pálína Ósk Hraundal, 2.12.2007 kl. 19:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.