Það sem er á döfinni

Þá er ég búin að skreyta heimilið smá. Er samt að spá í því hvort ég þurfi ekki að kaupa jólatré svo það myndist alvöru jólastemmningWoundering Ég keypti svona nammidagatal eins og maður fékk þegar maður var krakki. Það er alveg viss stemmning að vakna og opna næsta gluggaGrin Það eru ekki nema 19 dagar þangað til við komum heimWink 

Það er alveg fullt á döfinni þangað til við komum heim þannig það á pottþétt eftir að stytta biðina. Við eigum eftir að skrifa jólakort, svo er útileikur hjá Loga núna um helgina og það þýðir að hann leggur örugglega af stað á fimmtudagsmorgun. Þeir spila svo á föstudegi og koma heim á laugardag. Við ætlum svo að reyna að klára að kaupa flestar jólagjafirnar á laugardeginum ef Logi verður ekki alveg úrvinda eftir ferðinaSleeping Síðan er annar útileikur helgina eftir það og hann er lengra í burtu eða rétt hjá Barcelona þannig að þeir fara örugglega með rútu þangað á miðnætti á miðvikudegi, keppa svo á föstudegi og ég ætla mjög sennilega að fljúga þangað á föstudeginum og fara á leikinn. Svo ætlum við að verða eftir og eyða helginni í BarcelonaGrinjeij. Síðan seinustu vikuna áður en við komum heim förum við í þrívíddar sónar og mæðraskoðun. Svo er heimaleikur á laugardegi og við komum heim á sunnudeginum 23.desLoL

Svo vil ég líka óska litlu prinsessunni til hamingju með nafnið. Hún heitir Ágústa ÓlafsdóttirGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

til hamingju með litlu frænku þína ;) ég verð eimitt hérna úti um jólin, hef aldrey verið að heiman fyrr þannig það verður skrýtið   en samt gaman líka að prufa eithvað nýtt  þrívíddarsónarinn er langskemmtilegastur segja allir ;) þannig það verður gaman, þá sést líka krílið svo ótrúlega vel  

Lára (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 17:57

2 identicon

Það var mikið að þú skrifaðir....   Rosalega hlakka ég til að þið komið heim, og sjá bumbuna. En ég eða við Dóri förum norður sennilega 23. um kvöldið eða 24 um morguninn og komum aftur til Rvíkur 25. um kvöldið. Það er alla veganna stefnan núna...

En ég verð nú samt að aðeins að hrósa þér fyrir myndirnar á barnasíðunni... ótrúlega gaman að fylgjast með.

Til hamingju með frænku

Heyrumst, love Tóta

Þórunn (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 19:48

3 identicon

Hlakka svooooo til að sjá ykkur um jólin!! Já sammála Tótu, æðislegt að getað fylgst svona vel með ykkur og endilega fleiri myndir af ykkur og heimilinu og staðnum sem þið eruð á :)

luv***

Inga (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 21:21

4 identicon

Takk fyrir kommentin skvísur

Lára: Það eru svaka viðbrigði að vera ekki heima um jólin. Við Logi þurftum að vera tvö jól úti í Þýskalandi en fengum samt sendan íslenskan jólamat og það munaði sko öllu. Það er líka alltaf samt svo gott að komast og hitta fjölskyldurnar eftir langan tíma í burtu. Vonandi hafið þið það æðislegt á Portúgal um jólin

Þórunn: Hlakka líka ýkt til að sjá þig um jólin en það lítur sem sagt allt út fyrir það að við verðum að hittast eftir jól. Við Logi verðum keyrandi á milli öll jólin og svo fer hann aftur út 28.des. Þannig að það er gott að ég verð til 6.jan Verum allavega í bandi.

Inga: Hlakka líka ýkt til að sjá þig um jólin. Ég skal reyna að finna einhverjar nýjar myndir og skella þeim inn sem fyrst

Birness (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband