17.1.2008 | 18:05
Skýjað, 20 stiga hiti og heitur vindur :)
Veðrið er búið að vera alveg frábært hérna á Spáni þótt það verði nú einstaka sinnum soldið kalt en þá rýkur hitinn alltaf upp aftur
Það er allt annars mjög gott að frétta af okkur, aðeins 63 dagar í settan fæðingadag og barnið stækkar og stækkar
Logi er náttúrulega alltaf á fullu í körfunni og þeir voru einmitt að leggja af stað í útileik í dag en spila reyndar ekki fyrr en á morgun. Það er ansi mikið hallæri hjá liðinu reyndar eins og er, eiginlega allir stóru gaurarnir meiddir Liðið er reyndar búið að redda auka stórum gaur fyrir leikinn á morgun þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvernig sá leikur fer. Eftir leikinn á morgun er tímabilið akkurat hálfnað og eins og er eru þeir í 2.sæti deildarinnar
.
Við erum annars bara búin að vera að skoða svona hitt og þetta barnadót sem við þurfum að fara að kaupa. Ji ég vissi ekki að það gæti verið svona erfitt, ég er svo óákveðin hvað ég vil kaupa. Ég vildi að Ingunn systir mín væri hérna hjá mér núna, hún mundi sko segja mér hvað ég ætti að kaupa og við mundum örugglega ná að kaupa allt á einum degi heheheh
. Ég fékk nú samt sem betur fer góðan lista hjá henni áður en ég fór út yfir svona það helst sem maður þarf að eiga svona til að byrja með
Meðan ég man þá var nýársheitið okkar Loga að verða góð í spænskunni áður en tímabilið er á enda Ég vona að það gangi, allavega mætum við alltaf tvisvar í viku í tíma og þar gengur okkur ágætlega. Við erum allavega farin að skilja ágætlega og Logi talar líka ágætlega en ég er ekki alveg komin með þetta. Mér finnst mér vanta svo mikið upp á orðaforðann. En eins og alltaf þá er þetta svo allt öðruvísi því við umgöngumst aðallega fólk sem talar ensku og þurfum þess vegna ekki að reyna á okkur að tala spænskuna
En vonandi kemur þetta bara hjá okkur
hehehe
Athugasemdir
ÞETTA ER SVOOOO SPENNÓOOOOO
Hlakka geggjað til að sjá þig og krílrík
Pálína (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 15:42
Já það er satt þetta er svo spennó
maður gæti alveg keypt heilu búðirnar af öllum þessum krúttlegu fötun
hehe en gaman að heyra að flugið og allt gekk vel hjá þér
verður spennandi að sjá litla krúttið þitt.
Lára (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 14:11
Já þetta yrði ekki lengi gert ef ég væri þarna hjá þér...gæti verslað svona dót á hverju ári og það yrði aldrei leiðinlegt
Ingunn syss (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 08:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.