19.5.2008 | 10:32
Hilmar kemur í dag
Jeiiiijjj...Hilli bróðir kemur í dag...það eru bara tveir tímar í það að ég og Sara Björk förum upp á flugvöll og náum í hann
...hann flaug fyrst til London Standsted og flýgur svo þaðan áfram til Asturias...haldiði ekki bara að hann hafi ekki rekist á hann Dustin Hoffman á London Standsted flugvellinum
...
Það er fínasta veður í dag...það eru nokkur ský á himni en sólin gjæist alltaf af og til á milli þeirra...það er aldrei að vita nema sólin bara ýti skýjunum alveg í burtu þegar líður á daginn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2008 | 16:26
Sofið á daginn og vakið á nóttunni!!!
Síðasti mánuður var ansi erfiður hjá okkur mæðgunum...sú litla var með mikla mallaverki í byrjun mánaðar...mikið grátið
...það er svo erfitt að horfa upp á barnið sitt gráta svona mikið og maður getur ekkert gert
...en sem betur fer er hún öll að verða betri þótt það komi nú vöku nætur inn á milli...
Það er komið nýtt albúm og færsla á síðuna hennar www.barnaland.is/barn/65677 Þrátt fyrir allan gráturinn og verkina þá dafnar henni alveg svakalega vel...hún er orðin 60cm og 5,3kg
...hún er búin að stækka upp úr öllum fötunum sem Ingunn systir mín sendi mér í mars...
Hilli bróðir er að koma í heimsókn eftir viku...jibbí...ég er orðin SVO spennt að fá hann í heimsókn...hann fær örugglega svaka gott veður þegar hann kemur og þá getum við farið og sólað okkur á ströndinni
...hann þarf nú einu sinni að að venja húðina fyrir Texas...(hann er að fara þangað 31.maí og verður í hálfan mánuð)...svo ætla ég að draga hann með mér í búðir því ég þarf að kaupa fullt af fötum á hana Söru Björk áður en við komum heim
Það styttist síðan alveg óðum í það að við komum heim...ég get ekki beðið
...mig langar helst bara að fara að pakka öllu núna og vera alveg reddí þegar við förum hehehe
...ætli við komum ekki heim í kringum 3. eða 4.júní...við vitum það samt ekki alveg...það kemur betur í ljós þegar líður á mánuðinn...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2008 | 19:45
Langt síðan ég bloggaði eitthvað síðast
Enda er alveg búið að vera nóg að gera...auðvitað getur maður bara ekki haft augun af litlu Söru Björk og svo voru líka bæði settin af öfunum og ömmunum hér um páskana
...það var ekkert smá gaman og gott að hafa þau hér til að stjana við okkur...svo klikkuðu þau nú ekki á því að koma með páskaegg handa okkur sem var náttla bara alveg snilld
...ég var búin að biðja um eitt lakkríspáskaegg frá góu og eitt hríspáskaegg frá freyju og svo fengum við líka svona mínímí páskaegg frá nóa og síríus nammi namm
...auðvitað var þetta allt étið upp til agna
...það var alveg fullt gert hérna á meðan þau voru hér...það var farið upp í fjöll og aðeins mollast...en það var nú reyndar ekki mikið keypt því á meðan þau voru hér fór evran alltaf hækkandi og var held ég hæst í 126kr
jæks...já og svo líka byrjaði veturinn hér á Spáni akkurat þegar þau komu
...svei mér þá, þá held ég barasta að það hafi verið 20 stiga hiti og sól
deginum áður en þau komu og svo fór bara veðrið alltaf versnandi...síðustu dagana kom meira að sega haglél...þau sem öll komu bara með sundföt og stuttbuxur hehehe
ææææjjj mar á nú ekki að vera að hlæja af þessu en þeim sem langaði svo að komast af klakanum aðeins í sólina
en þetta gleymdist nú allt þegar þau sáu litla sólargeislann okkar hana Söru Björk
...það var alveg svakalega notalegt að hafa þau öll hér í heimsókn...mar er bara strax farinn að sakna þeirra...vonandi verða bara þessir tveir mánuðir sem eftir eru fljótir að líða...ji hvað Sara Björk verður örugglega orðin stór þegar þau sjá hana næst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2008 | 18:36
Litla prinsessan komin í heiminn
Var að setja inn fyrstu myndirnar á barnalandsíðuna. Skrifa meira seinna
http://www.barnaland.is/barn/65677
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2008 | 18:05
Hhhmmmmmm
Þá er það enn ein helgin sem ég er home alone. Logi fór á fimmtudagskvöldið á miðnætti og kemur ekki heim fyrr en á sunnudag Ég barnastússast þá bara eitthvað á meðan hehehe. Við vorum einmitt að fá glæsikerruna og barnabílstólinn í fyrradag
jeij. Svo er ég bara að undirbúa það dót sem ég ætla að taka með mér þegar barnið ákveður að láta sjá sig hehehe. Svo var ég líka að fylla á skiptitöskuna sem fylgdi kerrunni
. Það er alveg svaka spenna í gangi núna því núna eru bara 19dagar í settan dag
og 13 dagar þangað til ma og pa og tengdó koma
Eins og ég tala alltaf um þá er alltaf bara yndislegt veður hérna hjá okkur og vonandi verður það bara þannig hehehe. En ég settist út á bekk í fyrradag í svona 15 mínútur og þegar ég kom inn var ég komin með freknur, jjjjiiii. Það er nánast bara alla dag milli 15-20°c og sól
Jæja hvort verður það stelpa eða strákur?????????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.2.2008 | 13:13
Nýr fjölskyldubíll
Við vorum að fá nýjan fjölskydubíl hehehe. Hvernig lýst ykkur á
?
Það sem er að frétta núna er það að í dag er ég gengi 35 vikur með meðgönguna og aðeins 35 dagar eftir í settan dag Logi og liðið lagði af stað á útileik í gærkvöldi kl 23 en það er ekki leikur fyrr en á föstudagskvöldið. Þetta er víst einhver 12 klukkutíma rútuferð
og þeir koma ekki heim fyrr en einhvern tíman á laugardaginn
. Ég hef samt alveg nóg að gera á meðan
og svo er veðrið náttúrlega alltaf jafn æðislegt, hver veit nema mar geti bara náð sér í smá lit
það veitir nú ekkert af
Hey já svo er ég hætt að haltra um eins og bavíani því það hefur greinilega losnað um taugina
þetta er allt annað líf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.2.2008 | 13:34
Komin með barnarúm og kerru






Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2008 | 15:00
Ég þjáist
af svo miklum verk. Já ég er búin að vera með einhverja helv**** klemmda taug í rasskinninni núna í rúmar tvær vikur ógó vont. Ég er að fara í þriðja skiptið í sjúkranudd á eftir en mér finnst það svo sem ekkert vera að gera neitt gott, bara ertir verkinn
En ég er allavega til í prufa allt til að losna við þennan verk.
Það er enn einn útileikurinn hjá Loga núna um helgina en núna er það bikarleikur. Þannig að ef þeir vinna á föstudaginn þá keppa þeir aftur á laugardaginn. Ég ætla að fara á leikinn með Mae, kærustu Petes og svo kemur einhver vinur hans Matt með okkur líka. Þetta eru einhverjir þrír tímar í keyrslu
. Við ætlum svo að gista þarna ef þeir keppa líka á laugardaginn.
Í dag eru 49 dagar í settan dag. Var að setja inn nýja mynd af bumbunni http://www.barnaland.is/barn/65677
Ó mæ hvað tíminn líður hratt, 1.febrúar á morgun, 44 dagar þangað til ma&pa og tengdó koma í heimsókn Það verður sko gott að láta stjana við sig þegar þau koma hehehehe
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2008 | 18:05
Skýjað, 20 stiga hiti og heitur vindur :)
Veðrið er búið að vera alveg frábært hérna á Spáni þótt það verði nú einstaka sinnum soldið kalt en þá rýkur hitinn alltaf upp aftur
Það er allt annars mjög gott að frétta af okkur, aðeins 63 dagar í settan fæðingadag og barnið stækkar og stækkar
Logi er náttúrulega alltaf á fullu í körfunni og þeir voru einmitt að leggja af stað í útileik í dag en spila reyndar ekki fyrr en á morgun. Það er ansi mikið hallæri hjá liðinu reyndar eins og er, eiginlega allir stóru gaurarnir meiddir Liðið er reyndar búið að redda auka stórum gaur fyrir leikinn á morgun þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvernig sá leikur fer. Eftir leikinn á morgun er tímabilið akkurat hálfnað og eins og er eru þeir í 2.sæti deildarinnar
.
Við erum annars bara búin að vera að skoða svona hitt og þetta barnadót sem við þurfum að fara að kaupa. Ji ég vissi ekki að það gæti verið svona erfitt, ég er svo óákveðin hvað ég vil kaupa. Ég vildi að Ingunn systir mín væri hérna hjá mér núna, hún mundi sko segja mér hvað ég ætti að kaupa og við mundum örugglega ná að kaupa allt á einum degi heheheh
. Ég fékk nú samt sem betur fer góðan lista hjá henni áður en ég fór út yfir svona það helst sem maður þarf að eiga svona til að byrja með
Meðan ég man þá var nýársheitið okkar Loga að verða góð í spænskunni áður en tímabilið er á enda Ég vona að það gangi, allavega mætum við alltaf tvisvar í viku í tíma og þar gengur okkur ágætlega. Við erum allavega farin að skilja ágætlega og Logi talar líka ágætlega en ég er ekki alveg komin með þetta. Mér finnst mér vanta svo mikið upp á orðaforðann. En eins og alltaf þá er þetta svo allt öðruvísi því við umgöngumst aðallega fólk sem talar ensku og þurfum þess vegna ekki að reyna á okkur að tala spænskuna
En vonandi kemur þetta bara hjá okkur
hehehe
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.1.2008 | 17:58
Gleðilegt nýtt ár!!!!!!!!!
jæja þá er ég komin aftur til Gijon sem er alveg æðislegt. Hér er dásamlegt veður, hiti og sól
Í dag eru 70 dagar í krílið
ji hvað þetta er fljótt að líða
.







Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)