22.12.2007 | 10:49
Ísland
á morgun. Við verðum komin á miðnætti Ég get ekki beðið
Við erum búin að pakka öllu og alveg klár að koma heim. Það er heimaleikur hjá Loga í kvöld og það væri gott að fara með sigur í jólafrí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2007 | 17:07
Niðurtalningar
3 dagar í Barcelona, 12 dagar í heimkomu og 100 dagar í litla krílið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2007 | 17:57
Litla gula hænan (ég)
já ég sem hélt að maður mundi læra af mistökum Það er allavega greinilegt að ég hef ekki lært af mínum
Þegar ég var 13 ára (rétt fyrir fermingu) þá ákvað ég að mig langaði ekki lengur að vera ljóshærð. Þannig að ég ákvað að fara út í búð og kaupa mér skol í hárið. Mig langaði svo að vera með svona kastaníubrúnt hár
Útkoman varð sem sagt
bleikt hár og eftir hvern þvottinn varð það ljósbleikarar og ljósbleikara
Endaði með því að vera með ljósbleikt hár á fermingunni
En allavega eftir þetta ákvað ég að ég ætlaði aldrei aftur að setja skol í hárið á mér. Maður á bara að láta fagfólkið um þetta
En allavega þá ákvað ég núna í fyrradag að prófa bara svona skol því mér fannst rótin aðeins farin að dekkjast. Langar samt ekki að fara á stofu hér og enda með gult hár eins og sumar spænskar"wannabee" blondes. Þannig að ég ákvað bara að fara út í búð og kaupa mér ljóst skol. jjjjjjjjjjjjææææækkkkkkssss
Þetta var sem sagt útkoman, vona bara að ég nái að skola þetta úr fyrir jólin því ég kemst ekki í lagfæringu heima fyrir jól Kann einhver gott ráð við svona messi, ætli þetta fari úr eftir nokkra þvotta? á ég að lita á mér hárið brúnt? eða bara vera sátt við þetta????????????????????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.12.2007 | 10:41
Það sem er á döfinni
Þá er ég búin að skreyta heimilið smá. Er samt að spá í því hvort ég þurfi ekki að kaupa jólatré svo það myndist alvöru jólastemmning Ég keypti svona nammidagatal eins og maður fékk þegar maður var krakki. Það er alveg viss stemmning að vakna og opna næsta glugga
Það eru ekki nema 19 dagar þangað til við komum heim
Það er alveg fullt á döfinni þangað til við komum heim þannig það á pottþétt eftir að stytta biðina. Við eigum eftir að skrifa jólakort, svo er útileikur hjá Loga núna um helgina og það þýðir að hann leggur örugglega af stað á fimmtudagsmorgun. Þeir spila svo á föstudegi og koma heim á laugardag. Við ætlum svo að reyna að klára að kaupa flestar jólagjafirnar á laugardeginum ef Logi verður ekki alveg úrvinda eftir ferðina Síðan er annar útileikur helgina eftir það og hann er lengra í burtu eða rétt hjá Barcelona þannig að þeir fara örugglega með rútu þangað á miðnætti á miðvikudegi, keppa svo á föstudegi og ég ætla mjög sennilega að fljúga þangað á föstudeginum og fara á leikinn. Svo ætlum við að verða eftir og eyða helginni í Barcelona
jeij. Síðan seinustu vikuna áður en við komum heim förum við í þrívíddar sónar og mæðraskoðun. Svo er heimaleikur á laugardegi og við komum heim á sunnudeginum 23.des
Svo vil ég líka óska litlu prinsessunni til hamingju með nafnið. Hún heitir Ágústa Ólafsdóttir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.11.2007 | 11:42
Ég er algjör...
meistarakokkur, þótt ég segi sjálf frá híhíhí. Thanksgiving maturinn var alveg svakalega góður
. Ég get nú kannski ekki tekið kredit fyrir allt en ég bjó til fyllinguna í kalkúninn, salatið og kokkaði kalkúninn
Matt kom með kartöflumús, Brandon kom með ostaköku í eftirrétt, Logi bjó til sósuna, Mae bjó til meðlæti og hinir komu með drykki. Þetta voru ca. 6.5kíló af kalkún þannig að það er búið að vera afgangur af kalkún í öll mál núna síðustu daga
Kalkúnninn lítur kannski ekki eins vel út á mynd og ég hélt en ég setti bara samt inn mynd af honum.
Kalkúnninn
Veislu borðið
Logi, Matt, Andy, Lucian, Brandon, Pete og Mae
Það er allt annars gott að frétta og við alltaf að verða spenntari og spenntari að koma heim um jólin. Aðeins 27 dagar þangað til við komum heim
Litla prinsessan hennar Ingunnar systur verður síðan skírð um helgina. Það er spennandi að vita hvaða nafn hún fær
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.11.2007 | 16:29
Jólin, jólin....
Nú eru aðeins 33 dagar til jóla sem þýðir að ég ætla að byrja að skreyta hjá okkur næstu helgi Smella íslenska jólageisladisknum
okkar í tækið og GO CRAZY
. Hjá okkur fer Þorláksmessa mest öll í ferðalag
. Við leggjum af stað héðan um kl14 og lendum á klakanum rétt fyrir miðnætti
Við erum orðin ýkt spennt
að koma heim þótt Logi fái aðeins 4 daga heima. Ég ætla reyndar að vera aðeins lengur
þannig að ég fer aftur út 6.janúar 2008. Ég ætla sko innilega að vona að þetta verði hvítjól
Við ætlum að taka smá forskot á sæluna og halda upp á "THANKSGIVING" á morgun Við ætlum að hittast 8 stykki hérna heima hjá okkur og elda kalkún
með öllu því tilheyrandi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2007 | 23:23
Myndir af prinsessunum
Sætar systurnar
Sæta stóra prinsessan
Sæta litla prinsessan
Ég setti inn nýtt myndaalbúm með sætu prinsessunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.11.2007 | 14:47
Ég er orðin frænka...aftur :)


Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2007 | 17:10
Kassarnir komu loksins
Við tengdó keyrðum í ca. fjóra tíma til Logoronja og fylgdumst með æsispennandi körfuboltaleik sem auðvitað endaði með því að við unnum
jeij. Þá er Gijon búinn að vinna alla sína leiki sem af eru af tímabilinu og vonandi heldur það bara svoleiðis áfram
Þeir eru að keppa hérna heima á laugardaginn !!GO GIJON GO!!
Loksins fengum við kassana okkar frá Bayreuth Þýskalandi Það var ansi gaman að kíkja í kassana 5 og sjá hvað við eigum af dóti hehehe. Við erum búin að taka upp heimabíóið okkar og tengja það við nýja PLASMA TV-ið
þannig að þeir sem vilja eru velkomnir í bíóstemmara hingað
Þá eru bara 52 dagar til jóla jeij. Við fengum einmitt það jólaskraut sem við vildum eiga með í kössunum þannig að það er bara spurning hvenær maður á að fara að skreyta
Ég á örugglega eftir að skreyta snemma því þetta verða ekkert svo löng jól sem Logi fær heima
Ætli hann fái ekki einhverja 3 daga
en það kemur kannski bara betur í ljós þegar nær dregur, kannski fá þeir lengri tíma heima ef þeir halda áfram að vinna
Ég er að spá í fara bara fljótlega að snúa mér að því að kaupa jólagjafir og kannski verður maður duglegur og gerir einhver heimatilbúin jólakort
Ég held ég ætli ekkert að vera að nota þetta blogg fyrir meðgöngufréttir þannig að ég er að pæla í því að skrifa um það bara í vefdagbókina á krílasíðunni okkar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2007 | 17:32
Færsla á dag
Ég vild ég gæti skrifað nýja færslu á hverjum degi. Ég hef verið að lesa hin og þessi blogg og mér finnst vera svo margir sem skrifa færslu bara á hverjum degi eða annahvern dag. Ég nenni nú ekki að fara að drepa fólk úr leiðindum með því að skrifa hvað ég var að gera yfir daginn
þótt það sé nú alveg nóg að gera hjá mér yfir daginn
Það er allavega nóg að gera núna þessa dagana við erum með gesti og þá flýgur tíminn bara frá manni. Bara á þessum stutta tíma erum við búin að sýna þeim það helst svona sem er að sjá hér í Gijon og svo auðvitað búin að fara í mollin
. Það er spurning hvort þau fari ekki með einhverja yfirvigt heim
Svo vorum við skötuhjúin að kaupa okkur PLASMA-TV, geggjað flott
Það er leikur hjá Loga á morgun og það er útileikur. Þetta er þá fyrsti leikurinn hans frá því hann meiddist í bakinu. Leikurinn er einhverja 4 tíma í burtu og liðið lagði af stað í dag en við erum að spá í fara á leikinn á morgun. Við leggjum þá örugglega bara af stað um hádegi og tökum því rólega. !!!!GO GIJON!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)